17.5.04
Þvílíkur munur að versla í nýju Bónusbúðinni á Egilsstöðum miðað við þá gömlu. Þar var svo þröngt að maður flaut bara með straumnum allan hringinn og það var bara happa og glappa hvað var í pokunum þegar maður kom heim. En þetta er allt annað líf, meira að segja bílastæðin eru í fullri stærð. Ekki má gleyma BT og Office 1 búðunum sem eru við hliðina. Þetta er bara næstum eins og í Reykjavík! Nú vantar bara Rúmfatalagerinn og þá þurfum við ekkert að fara meira suður...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli