Sagan endalausa um tölvuvandræðin í vinnunni: Nú er ég farin að halda að að sé ekki vírus sem er að valda þessum vandræðum, heldur vírusvarnarforritið! Það hafa verið að koma meldingar um einhverja villu í því og skipun um að taka forritið út og setja það inn aftur, sem ég hef ekkert gert með hingað til.
En í morgun ákvað ég að nú gengi þetta ekki lengur og gerði akkúrat þetta. Þá kom í ljós að ég hafði ekki verið að fá LiveUpdate þó forritið hafi alltaf sagt að svo væri og það var greinilega ekki að virka eins og það á að gera. Samt komu nú enn villuboð um einhvern uppsettan driver sem mig grunar að tilheyri þessu forriti.
Ef þetta heldur áfram, þá neyðist ég til að taka vírusvarnarforritið út og setja það bara upp til að vírusleita annað slagið. Vesen.
Þoka og rigning í dag... Hvar er sólin sem veðurfréttamaðurinn lofaði okkur í gær?
12.5.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli