Það er óhætt að segja að það sé farið að róast hjá mér í vinnunni... Fólk er greinilega komið í sumarskap og hætt að lesa. Samt hangir þokan niður í miðjar hlíðar, en það er þó þurrt og þokkalega hlýtt enda nálægt því að vera logn. En hugsið ykkur - ef það væri einhver vindur þá væri kannski ekki þoka... Jæja, það truflar mig ekki, er hvort sem er föst hérna inni alveg til kl. 7 í kvöld. Hvað á ég nú að gera til að láta tímann líða...?
Helst að fólk komi til að fá að fara á Netið, en því miður er nýja tölvan sem snillingarnir fyrir sunnan seldu mér um daginn, alveg ómöguleg. Hún hagar sér eins og það sé vírus í henni, þó ég sé alltaf að vírusleita og hreinsa hana. Ýmist hendir fólki út af Netinu, eða alveg út úr tölvunni en þá ræsir hún sig strax aftur. Best að vírusleita hana einu sinni enn...
10.5.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli