19.6.04

Laugardagur 19. júní

Fór í kvennahlaupið í morgun, mjög svo hressandi og svo skemmtilega bleikir bolirnir...:) Mér tókst að draga Söndru með mér og held ég að það sé í fyrsta skiptið sem við mæðgurnar förum saman í kvennahlaupið! Annað hvort hefur hún ekki verið heima, eða þá ég. En í ár skokkuðum við sem sagt 2 km saman (það var ómögulegt að draga hana lengra) - mjög skemmtilegt.

Veðrið er þokkalegt, sólarglampi en frekar kaldur vindur. Ætla samt að drífa mig út núna að setja niður sumarblómin sem ég keypti fyrir ca. 3 vikum síðan. Sannarlega tími til kominn, en það er bara alltaf svo mikið að gera...! Fer í sumarfrí um mánaðamótin en þá er það lærdómurinn. Hver fann eiginlega upp á því að hafa sumarönn?

Engin ummæli: