25.10.03

Jæja, þá er búið að skila verkefni 3 í Fjölmenningu, kúrsinum sem ég er í í KHÍ. Þetta var hópverkefni, unnið með tölvu- og símasambandi og gekk bara ótrúlega vel. Takk fyrir samstarfið Sif og Sveinbjörg!

Við Helle erum þegar byrjaðar á verkefni 4, enda er það langstærsta verkefnið og gildir 50%. Við ætlum að skoða stöðu erlendra kennara gagnvart skólamenningu í grunnskólum á Austurlandi, hvorki meira né minna. Við erum búnar að tilkynna verkefnið til Persónuverndar, fá upplýsingar frá skólastjórum um erlenda kennara (þeir eru a.m.k. 8 á Austurlandi), semja spurningalista og senda þeim. Nú er bara að bíða eftir svörum og svo ætlum við að fylgja spurningunum eftir með viðtölum.

Þann 19. nóv. eigum við að kynna verkefnið í staðbundinni lotu í KHÍ og skila 20 bls. skýrslu fyrir 1. des. Rosalega er þetta gaman!

Engin ummæli: