22.10.03
Þetta er nú meiri vikan. Fyrir utan allt annað er ég að fara fjórum sinnum til Egilsstaða á 5 dögum! Samt er ég ekki í vinnu þar, ég á ekki barn í menntaskólanum (lengur) og ég þekki mjög fáa þar. Sko, á mánudaginn keyrði ég dóttur mína í flug (og fór í Bónus), í dag fór ég að sækja bróður minn sem kom með rútu að norðan (fór ekki í Bónus), á morgun er ég að fara á fund vegna bókasafnsins (fer mjög sennilega í Bónus) og á föstudaginn er ég að fara að vinna í verkefni með samnemanda mínum (fer í Bónus ef ég hef gleymt einhverju daginn áður). Gott að hafa góða afsökun til að komast í Bónus...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli