19.10.03

Það er bara eins og ég hafi ekki lent í neinu skemmtilegu í allt sumar og haust! En það er nú öðru nær. Ég tók fínan sumarkúrs hjá Stefáni Jökulssyni og mjög lærdómsríkt og spennandi vettvangsnám hjá Sólveigu Jakobs. Síðan fór ég í alveg meiriháttar fjölskyldufrí til Spánar í 2 vikur. Það var að vísu ansi heitt, en frábært engu að síður.

Á haustönninni ákvað ég að taka kúrs af annarri námsbraut til tilbreytingar, hann heitir Fjölmenning og er mjög áhugaverður og skemmtilegur.

Engin ummæli: