2.11.03
Það eru ótrúlega margir í kringum mig að ferðast til útlanda um þessar mundir. Mamma og pabbi eru nýkomin heim frá Þýskalandi, bróðir minn og fjölskylda hans eru að koma heim frá Englandi nú í kvöld, mágkona mín og svili eru úti í Barcelona og maðurinn minn er í Dublin! Hann er þar á ferð með starfsmannafélagi bræðslunnar þar sem hann vinnur. Helle samnemandi er að fara til útlanda með skólanum sínum og ég er að fara til Bristol með skólanum mínum um næstu helgi :) Hinn bróðir minn er svo á leið til Nýja-Sjálands á næstunni, en Elva frænka mín var einmitt þar um daginn með kærastanum sínum. Og svo er tengdamamma að hugsa um að vera hjá dóttur sinni í Englandi um jólin. Þetta er alveg með ólíkindum...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli