Þegar ég fer að gera upp þetta blogg eftir námskeiðið, þá sé ég að það vantar inn í "Eldra efni" hér við hliðina. U.þ.b. hálfan mánuð frá 15.-30.mars og alveg sama hvernig ég reyni að senda þá pósta inn, þeir bara vilja ekki fara þar inn! En ég get séð þá á neðra svæðinu í "edit your blog" hjá mér; þeir eru alls 6 talsins frá 17., 18., 21., 24., 28. og 30.mars. Á þessum tíma hafði ég ábyggilega verið að breyta stillingunni á Archive Frequency úr Weekly í Monthly og aftur til baka. (Eða gerðist þetta kannski af því að ég var ekki að tala mjög fallega um heimsókn Stefáns Karls í skólann okkar...?)
Jæja, hvað um það. Þessum kafla er lokið, en það getur vel verið að ég haldi áfram að blogga af og til ef ég lendi í einhverju skemmtilegu :)
10.6.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli