3.2.08

Nú er hart í ári

...hjá smáfuglunum. Og ekkert fuglafóður til, hvorki í kaupfélaginu né í Bónus. Við brugðum á það ráð í gær að mylja niður brauðenda og blanda saman við smávegis múslí handa þeim. Ekki var annað að sjá en að það færi bara vel í þá, í það minnsta hreinsuðu þeir skaflinn. Litlu greyin. „Munið eftir smáfuglunum“.

Var að koma úr dýrindis bollum hjá Ólafíu og búin að skella tveimur plötum af vatnsdeigsbollum í ofninn. Þær verða tilbúnar á eftir þegar kallarnir mínir koma heim frá Fáskrúðsfirði þar sem Stefán er að keppa í fótbolta. Eins gott að þeir verði svangir.

4 ummæli:

Thorarinn sagði...

Það eru farnir tveir pokar hjá okkur í þessari viku!

Nafnlaus sagði...

Þetta var einmitt líka gert á þessu heimili, gamalt brauð mulið niður handa litlu greyunum :)

Nafnlaus sagði...

Aðrir sálmar: - Takk fyrir miðana á "fló á skinni".

Ágætur farsi þar á ferð.
//HK

Bára Mjöll sagði...

Verði ykkur að góðu Hannes - gaman að þið gátuð nýtt miðana fyrst við sátum heima. Bestu kveðjur til ykkar allra :)