Ekki var ég fyrr komin úr kafi en Þorrablótið skall á. Og það ekkert smáblót! Um eða yfir 400 manns sprengdu utan af sér félagsheimilið Herðubreið og fór blótið því fram í íþróttahúsinu. Það hefur ekki gerst áður en var bara stórfínt; skemmtileg dagskrá í flottri þjóðlegri umgjörð, nóg pláss fyrir alla og miklu betri snyrtiaðstaða heldur en í Herðubreið. Það var meira að segja hægt að lenda á spjalli á klósettinu ;) Við fórum ekki heim fyrr en klukkan þrjú eða hálf fjögur sem ég hugsa að sé nálægt því að vera met hjá okkur sem erum annars venjulega komin heim fyrir klukkan tvö.Datt svo í Harðskafa Arnaldar í gær og maður minn, hann kann svo sannarlega að halda athygli lesandans. Frábærlega grípandi bók.


3 ummæli:
Þú syndir - ekki spurning!
Við skelltum okkur líka á blót en vorum í styttra lagi. Dönsuðum 3 dansa og vorum komin heim um eitt. Það var rosalega gaman að fara samt.
Bestu kveðjur austur,
Elva bumba
ps. til hamingju með nýja tilvonandi titilinn!!
Takk, takk Elva mín - jú, er að ná þessu fyrsta, en veit ekki alveg með þetta síðasta ;)
Bestu kveðjur til ykkar og vonandi gengur allt vel með kiwi litla, nú fer að styttast í hann!
Hey Bara
nice to hear from you.
How are things over there?
Hope you are happy and well.
I am in London now.(went to
africa in Dec for church events)
I'm planning to go back to Taiwan
at the end of this month.
Take care and God Bless
Skrifa ummæli