17.2.08

Af norðurbrún

Undanfarin vika hefur guði sé lof verið mun mildari en vikurnar tvær þar á undan. Ég komst alla dagana klakklaust og á réttum tíma í vinnuna og fór m.a.s. í mjög góða og löngu tímabæra heimsókn til Hornafjarðar á fimmtudaginn var. Þeirri ferð hafði þá verið frestað tvo fimmtudaga í röð sökum óveðurs og ófærðar. Aðrar ferðaáætlanir röskuðust einnig á tímabilinu, t.d. varð ekkert úr Akureyrarferð sem áætluð var um síðustu helgi. En þrátt fyrir betra tíðarfar þessa dagana þorir maður ekki að vona að veturinn sé búinn, nei ónei. Enn er aðeins febrúar og góa ekki einu sinni byrjuð. En nú styttist í að sólin nái að skína á Seyðfirðinga, opinberi dagurinn er 20. febrúar þegar hún á að sjást alls staðar í bænum. Af því tilefni bauð húsbóndinn á þessu heimili í dag upp á rjómapönnukökur sem voru ákaflega vel þegnar af heimilisfólki.

Símamyndin er tekin af norðurbrúninni einn daginn í vikunni þegar ég var á heimleið úr vinnu á sama tíma og sólin var að setjast á bak við Fljótsdalsheiðina. Fallegt ekki satt?

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Bára Mjöll sagði...

Ekki veit ég hvað er í gangi hér, en það virðast einhverjir tölvuþrjótar endilega vilja setja mjög svo vafasamar krækjur hingað inn. Það er ástæðan fyrir því að ég hef eytt tveimur athugasemdum hér fyrir ofan!

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

hæ hæ Bára Mjöll
kíkti inn og hvernig gengur? þarftu ekkí bráðum að skreppa suður? Eða norður? ég verð líklega á Akureyri páskadagana ... :-)

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.