Eins og dyggir lesendur þessarar síðu kunna að hafa rekið sig á, þá hefur hún verið lokuð nú um stundarsakir. Var gripið til þessa ráðs í mótmælaskyni við fremur pirrandi athugasemdir frá óprúttnum aðilum, grunuðum um að vilja dreifa ormum og vírusum til grandalausra. En nú vonast ég til að með því að virkja svokallaða "orðastaðfestingu" í athugasemdakerfinu, megi koma í veg fyrir svona rusl á síðunni. Þeir sem vilja skilja eftir athugasemd eru því vinsamlega beðnir um að staðfesta "orðið" sem þeir sjá með því að skrifa það aftur í þartilgerða línu.
Sá sem kvittaði nafnlaust við síðustu færslu má t.d. endilega skrifa aftur og þá undir nafni, því ég hef enn ekki komist að því hver þetta var...?

Annars fórum við suður um síðustu helgi til að lyfta okkur upp, hitta skemmtilegt fólk og sækja nýjan bíl. Allt þetta gekk eins og best varð á kosið. Takk fyrir helgina og bestu kveðjur til allra sem við hittum í ferðinni, bæði fyrir sunnan og á heimleiðinni!
3 ummæli:
Sæl Bára, ekki var það ég skrifaði án þess að geta nafns :)
Sjáumst vonandi eitthvað um páskana. Kv Helga Dögg
hæ og takk fyrir síðast! Það var heldur ekki ég sem skrifaði við síðustu færslu án þess að geta nafns :)
Nei, þetta var mjög dularfullt! Lýsi hér með eftir þessum nafnlausa kvittara...
Skrifa ummæli