5.1.08

... og gott nýtt ár!

Jól og áramót voru sérdeilis góð og skemmtileg hjá okkur og alveg með hefðbundnu sniði; samvera með fjölskyldunni bæði hér og fyrir norðan, góður matur, afslöppun og afmæli Jóhanns. Söknuðum helst fjölskyldunnar í Cambridge og kannski var aðeins of mikið af góðum mat og sætindum... en hey, það eru nú jólin!

Sandra kom austur á gamlársdag og vorum við öll að vanda hjá Ólafíu um kvöldið. Við mættum með forrétt, blómkálssúpu með stökku beikoni og svo var kalkúnn með öllu og heilt eftirréttahlaðborð á eftir! Nýtt ár gekk í garð með fyrirheitum um betri tíð með blóm í haga, vonandi að það reynist okkur öllum gott og farsælt.

Nú er lífið aftur byrjað að ganga sinn vanagang og mikið er það nú alltaf gott...

Engin ummæli: