24.12.07

Gleðilega hátíð!

Klukkan er 3 á aðfangadegi jóla og allt að verða klárt í Bröttuhlíð 5, neðri hæð. Jóhann er að ljúka við að skera niður ávextina sem eiga að vera með rommkúluísnum í kvöld og ég fer bráðum að taka mig til fyrir kirkjuna, en kórinn mætir kl. 5. Það styttist í að Jóhann byrji að steikja rjúpurnar og þá kemur nú jólalyktin í húsið :) Stefán er reyndar enn úti í fótbolta en hlýtur að fara að koma inn. Sem sagt hefðbundin jól aftur eftir tilbreytinguna í fyrra úti í Englandi.

Við sendum öllum vinum og ættingjum nær og fjær óskir um gleði og frið á jólum og farsæld á komandi ári. Bestu þakkir fyrir ánægjulegar samverustundir á árinu sem er að líða, sem og á liðnum árum.

Fjölskyldan Bröttuhlíð 5, Seyðisfirði

2 ummæli:

Hannes sagði...

Gleðileg jól - og gott nýtt ár !

Bára Mjöll sagði...

Sömuleiðis Hannes minn. Mikið var gaman að hitta ykkur aðeins fyrir norðan um jólin - skemmtið ykkur vel í kvöld!