Þegar við Stefán vorum á leið í Héraðið seinnipartinn í gær til að sinna nokkrum erindum tengdum jólaundirbúningi, þá mætti okkur þessi fallega sólarlagsrönd á himninum yfir Fljótsdalsheiði. Af einskærri heppni var myndavél með í för og því hægt að taka mynd af dýrðinni, þótt svona stemmning skili sér auðvitað aldrei alveg á ljósmynd.Nú er loksins aðeins farið að róast í vinnunni hjá mér og sé ég fram á að verða bara í 100% vinnu eftir áramót, sem betur fer. Maður getur þá vonandi sinnt fleiru en vinnunni og kórastarfinu, en það er eiginlega það eina sem ég hef gert í allt haust! Samt ferlega gaman en allt annað hefur setið á hakanum og það er ekki nógu gott. Kannski blogginu verði þá líka betur sinnt...
Það var mjög gaman að taka þátt í Requiem með Samkór Austurlands en það tók líka mikinn tíma. Fyrst nokkrar samæfingar á Reyðarfirði og Egilsstöðum, svo helgi á Akureyri og síðast heill laugardagur á Eskifirði. Allt gekk vel og fullt hús á báðum tónleikunum. Ég vona að það verði annað svona verkefni í vor eða alla vega næsta vetur. Við náðum svo að skreppa norður eina helgi áður en næsta törn tók við og nú var það hjá Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Kirkjukórinn skellti sér sem sagt ásamt mökum til Barcelona seint í nóvember. Það var aldeilis frábær ferð í alla staði og náði borgin alveg að heilla okkur á þessum fáu dögum sem við dvöldum þar. Ekki síst Gaudí með sína sérstöku hönnun. Ég segi fyrir mig að alveg væri ég til í að fara þangað aftur.Og nú eru jólin að nálgast. Undirbúningur hjá okkur gengur vel og jólastress lítið látið á sér kræla í þetta sinn. Við fórum í jólahlaðborð út í Skaftfell með stórfjölskyldunni í gær, sem var mjög notalegt og yndislegt. Bærinn er alveg einstaklega fallega skreyttur og þegar jólatréð verður komið í Hólmann, þá verður varla hægt að biðja um meira.
Kæru vinir - eigið fallega og friðsæla jólaföstu.


2 ummæli:
Jibbí, loksins blogg :) glæsilegt! Gott að það er farið að róast hjá þér vinnan og að jólaundirbúningurinn gengur vel. Við sjáumst milli jóla og nýárs, get ekki beðið :) Bið að heilsa í Bröttuhlíðina.
Sandra Hrafnhildur
Gott að stressið hefur ekki náð tökum á ykkur. Hafið það gott um hátíðirnar!
Kveðja,
Elva bumba
Skrifa ummæli