
Mér, ásamt öðrum nýliðum, var boðið í sérstakan "innritunarkvöldverð" í Hughes Hall, kollegíinu mínu sl. fimmtudag. Þetta er hluti af hefðunum og næta allir í sínu fínasta pússi, bæði nemendur og kennarar. Ég kunni nú ekki við að fara á hjólinu í fínum kjól og háhæluðum stígvélum, þannig að ég labbaði um 20 mín. leið og rennsvitnaði auðvitað á leiðinni. En kvöldið var alveg stórskemmtilegt. Á undan matnum var boðið upp á drykk, síðan var slegið í stóran skjöld og þá fóru allir niður í matsal þar sem var búið að raða til borðs. Maturinn var frábær, þríréttaður og nautalundir í aðalrétt. Í miðjum klíðum stóð forsetinn upp og hélt ræðu á latínu og ensku. Eftir matinn var aftur farið upp þar sem boðið var upp á kaffi, ávexti og drykki. Ég var hálfhrædd um að ég myndi ekki þekkja neinn, en það var alveg óþarfi því ég talaði allt kvöldið við alls konar fólk; Kínverja, Englendinga, Ameríkana og Norðmann og skipti engu máli hvort maður þekktist eða ekki. Svaka gaman.
Helgin er líka búin að vera góð. Nína bauð okkur í grill í gær og það svíkur nú engan. Stefán var að spila í morgun og náðu þeir góðum heimasigri, 5-2. Svo ætlum við að hitta Björn Hildi á kaffihúsi í miðbænum á eftir.
Á meðan ég man; við erum búin að fá okkur bæði Skype og Tölvusímann frá Símanum. Notendanafnið mitt í Skype er bara.mjoll og Tölvusímanúmerið okkar er 499 0339. Heyrumst!
4 ummæli:
... slae a thradinn vid taekifaeri.
Eg var einmitt ad spa hvort madur aetti ad fa ser tolvusimann lika, annars erum vid med Skype. Vid erum reyndar ekki enntha komin med netid heim, en thad verdur vonandi fljotlega.
Heyrumst!
NurseElva (Skypenafnid)
Við fengum okkur tölvusímann líka til að geta hringt í þá sem eru ekki alltaf í tölvunni, eða ekki með tölvu. Og þeir í okkur!
Þetta hefur aldeilis verið fín veisla - og góður heimasigur hjá Stefáni og félögum. Og myndirnar eru stórskemmtilegar.
Við vorum á "Slægjufundi" s.l. laugardag ásamt fjölskyldunni í B11
og Ásdísi (og mörgum fleiri)
og skemmtum okkur vel.
Sendum bestu kveðjur,
pabbi og mamma, Helluhrauni 15
Skrifa ummæli