24.10.06

Causewayside að utan

Pálmi bróðir var svo vænn að senda mér þessar fínu myndir sem hann tók þegar þeir feðgar heimsóttu okkur hérna í ágúst sl. Á þeim sést vel hvernig trén standa meðfram ánni rétt við húsið. Neðri myndin er tekin út um stofugluggann okkar.

Það er kannski ekki alveg svona sumarlegt enn þá, en það er ótrúlega lítið farið að hausta. Reyndar hefur heldur kólnað og um helgina var ekta haustrigning og laufblöðin eru farin að falla og fjúka... hm, það hlýtur að vera komið haust. Enda er farið að styttast í jólin, bráðum kominn nóvember!

Jóhann er að fara að vinna á morgun fyrir einn af vinum Pauls. Þetta er þriðji dagurinn (samt ekki í röð) sem hann er að vinna fyrir þennan mann og er hann (þ.e. Jóhann) mjög feginn að fá eitthvað að gera. Stefán er hins vegar í fríi alla þessa viku þar sem það er "half-term" í skólanum. Við erum að plana að skreppa í nokkurra daga frí, kannski til Frakklands, kemur í ljós.

Sandra og Danni, þið eigið von á glaðningi með póstinum :)

2 ummæli:

Elva sagði...

Fínar myndir - líka af íbúðinni. Ég öfunda ykkur af geymsluplássinu. Hérna niður frá höfum við EKKERT geymslupláss. Við troðum öllu undir rúmið! (og það kemst ekki meira þar undir...)

Gott að Jóhann hefur eitthvað að gera, ég skil hann svo vel :)

Nafnlaus sagði...

Hérna er sko farið að hausta. Kuldi og rigning alla dag. Öll laufblöðin eru að verða farin af trjánum svo það er varla hægt að labba á gangstéttunum lengur. Þau breytast í drullusvað í rigningunni svo maður er bara heppinn að fara ekki á hausinn í hverju skrefi.
Ég er alveg búin að gleyma hvers vegna ég flutti til Skotlands. :)