20.10.06

Íbúðin okkar í UK

Næst á dagskrá er skoðunarferð um íbúðina okkar hér í Englandi. Hún átti reyndar að vera löngu búin en frestaðist vegna tæknilegra örðugleika. En nú er ekkert að vanbúnaði:

Komið er inn í gang sem minnir dálítið á ganginn á Bjargi, með innbyggðum skápum og dyrum inn í hvert herbergi fyrir sig. Hann er bara heldur minni.

Ef við förum hringinn réttsælis þá er fyrst komið inn í eldhús. Það er eiginlega alveg pínulítið, alla vega miðað við eldhúsið okkar heima, en samt alveg nógu stórt!

Næst er baðherbergið en mér láðist víst að taka mynd af því. Hér erum við nefnilega komin inn í Stefáns herbergi, sem er fyrir enda gangsins. það er alveg þokkalega stórt og með ágætis húsgögnum. Glugginn snýr út að bílastæðunum og bílskúrunum, eins og eldhús- og baðglugginn.

Þá er það stofan. Hún er mjög rúmgóð með útskotsglugga sem snýr út að almenningsgarði með háum trjám, eins og áður hefur komið fram á þessu bloggi. Húsgögnin eru svona la la, Nína orðaði það svo skemmtilega: þau koma bráðum í tísku aftur!

Að lokum er það hjónaherbergið. Það er mjög gott með góðu geymsluplássi og meira að segja skrifborði sem gott er að sitja við og horfa út um gluggann... Þá er þessari skoðunarferð lokið, en ég má til með að setja hérna neðst mynd af trjánum við borðstofuborðið. Vona að þið hafið notið ferðarinnar.

4 ummæli:

Thorarinn sagði...

Fyrir þá sem eru vanir að horfa á íslensk tré og kynnu að draga ályktanir út frá myndinni af trjánum fyrir utan gluggann, þá er íbúðin ekki á jarðhæð...! ;-)

Bára Mjöll sagði...

Alveg rétt, mér láðist að geta þess að hún er nefnilega á þriðju hæð... Takk fyrir þessa ábendingu, Pálmi.

Nafnlaus sagði...

Rosalega er fínt hjá ykkur :) Er nokkuð teppi á baðherberginu? (Það var teppi í húsinu sem ég bjó í á Queen Ediths way, ógeðslegt! Varð að skjóta þessu inn) Allt fínt að frétta af okkur, vorum að koma frá RVK, set inn myndir og fréttir íkvöld á heimasíðu strákana. Bið að heilsa strákunum og auðvitað Nínu og Paul.

Bára Mjöll sagði...

Nei Helga, það er sem betur fer dúkur á baðherberginu. En við heimsóttum Björn Hildi og Regínu um daginn og þar var teppi á baðinu! Annars er voða kósý hjá þeim, þau búa á Cherry Hinton Road.