17.6.06

17. júní 2006

Það er kominn 17. júní hér á Seyðisfirði eins og annars staðar og við hjónin vorum að koma heim úr skrúðgöngu og hátíðardagskrá við félagsheimilið Herðubreið. Stefán spilaði að venju með lúðrasveitinni og veðrið var hreint alveg frábært (ekki endilega að venju); sól og hiti.Hér sjást skotmeistarar bæjarins undirbúa hið árlega fallbyssuskot sem markar upphaf hátíðardagskrárinnar.

Og hér er skrúðgangan lögð af stað með lúðrasveitina á vörubílspalli í broddi fylkingar. Mig langaði að setja hérna inn myndbandsbrot til að gefa sýnishorn af stemmingunni, en það tókst því miður ekki. Við verðum bara að ímynda okkur trommusláttinn og blásarana spila "Allir dansa kónga, allir dansa kónga..."

Ég fór líka í kvennahlaupið í morgun. Það var víst ekki pláss fyrir það í sjómannadags/helgar dagskránni um síðustu helgi, en komst sem betur fer fyrir í 17. júní dagskránni. Svo er grill og gaman hjá kirkjukórnum í kvöld. Ja, manni ætti ekki að leiðast í dag - gleðilegan þjóðhátíðardag!

5 ummæli:

Hannes sagði...

Gleðilega þjóðhátíð; - hátíðarhöldin eru ekki jafn stórbrotin hér í Puerto Varas, eins og á Seyðisfirði...

Stefni á að kíkja í heimsókn á Seyðisfjörðinn... er það að verða of seint ?

Bára Mjöll sagði...

Nei, nei, aldrei of seint. En ef þið viljið ná í skottið á okkur áður en við förum til Englands, þá er best að koma fyrir 17. ágúst. Þá eigum við nefnilega pantað far með Norrönu. Þið eruð alltaf velkomin, en veistu nokkuð um hvaða leyti þið eruð að spá í að koma?

Hannes sagði...

Það er nú bezt hafa frúna með í ráðum varðandi tímasetningar.
Þetta verður þó varla fyrr en eftir 9. ágúst; ekki tími fyrr - vegna mývetnskrar landvörslu.

Nafnlaus sagði...

Heil og sæl gamla vinkona.

Ég kíki stundum inn á síðuna þína.
Gott hjá þér að drífa þig til Cambridge! Hvað ætlar þú að læra?
Elsa systir býr í Cambridge, ef þú hefur áhuga, þá skal ég láta þig hafa heimilisfangið hennar.
Við hjónin ætlum loksins að láta verða að því að fara Austfirðina í sumar, ég kíki á þig.
Kær kveðja, Dagmar.

Bára Mjöll sagði...

Hæ Dagmar,
Ég ætla að halda áfram með framhaldsnámið mitt og fer í eins árs meistaranám í "Educational Leadership and School Improvement". Endilega komið við ef þið eigið leið um Seyðisfjörð fyrir 17.ágúst. Hlakka til að sjá þig!

Hannes, það er ekki nema rétt rúmlega tveggja tíma keyrsla á milli Mývatnssveitar og Seyðisfjarðar. Þið gætuð kannski skroppið í 1-2 daga, þarf ekki endilega að vera um helgi, við erum í sumarfríi...