7.4.06

Vetur konungur

lætur ekki að sér hæða. Undarfarnar þrjár vikur eða svo hefur verið hér mikið vetrarríki og oftar en ekki leiðindaveður. Allan daginn í gær var t.d. vonskuveður og mikið að gera í dag við að ryðja göturnar. Ég verð nú að segja, þó að það sé ágætt að hafa vetur þegar það á að vera vetur, að nú er komið nóg og ég vildi að það færi að vora. Það er eiginlega frekar eins og það séu að koma jól, heldur en páskar!

En ferming í næstu viku og er það mikið tilhlökkunarefni. Við höfum veisluna í sal og kaupum matinn svo þetta er ósköp þægilegt. Margir góðir gestir hafa boðað komu sína og fá væntanlega góðan skíðasnjó og vonandi gott veður.

Meðal annarra orða, háskólaumsóknin fór til Cambridge í síðustu viku og nú er bara að bíða og vona...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég verð með ykkur í anda á fermingardaginn. Það hefði nú verið brillíant að koma og fara á skíði í leiðinni. Það er eitthvað sem Hannes er búin að reyna að draga mig á síðan við kynntumst. En hefur ekki enn tekist... Oftast vegna snjóaleysis ;)

Bára Mjöll sagði...

Sjálf er ég nú ekki allt of dugleg við að fara á skíði. En það er gaman að vera uppi í fjalli í góðu veðri og góðu færi.

Kannski ég reyni að setja einhverjar myndir frá fermingunni á netið, svona fyrir ykkur sem ekki komist...