25.3.06

Að sækja um háskóla

Það er hörkuvinna að sækja um háskóla, skal ég segja ykkur. Reyndar var umsóknin í KHÍ frekar einföld miðað við Cambridge háskóla. Það er nú eins gott að ekki vanti neitt þar inn í og að allt sé í réttri röð. Fyrirmælin eru a.m.k. mjög nákvæm hvað það varðar. Nú er ég að bíða eftir ýmsum gögnum sem þurfa að fylgja með og svo er umsóknin farin. Þá tekur við bið eftir svörum. Ekki er víst að hún verði neitt auðveldari.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt, þú siglir í gegn um þetta.

Nafnlaus sagði...

Frábært, vonandi gengur þetta allt upp hjá ykkur :) Bestu kveðjur úr Fellabænum, Helga Dögg

Bára Mjöll sagði...

Takk, takk. Ég er alla vega fegin að ég náði að senda þessa fj... umsókn. Svo fer þetta bara eins og það á að fara.