Allir syngja með í lokasálminum. Stefán er þriðji frá vinstri í efri röð.
Fermingardrengirnir Kristján Smári og Stefán að fara að gæða sér á glæsilegum kransakökum sem amma Gunna í Mývatnssveit átti allan heiður af.
Gestir voru fjölmargir og sumir komnir langt að. Þeir gerðu veitingunum góð skil, enda allt fyrsta flokks hjá kokkum Hótel Öldunnar :)
14.4.06
Fermingardrengurinn Stefán Jóhannsson
Ferming fór fram í gær og tókst afskaplega vel. Veðrið lék að vísu ekki við okkur, en sólin fór þó að skína um það leyti sem matur var fram borinn í veislunni og var prýðis gluggaveður á meðan á henni stóð. Okkur langar að þakka öllum sem glöddu okkur með nærveru sinni eða sendu kveðjur og hlýjar hugsanir annars staðar frá. Hér fylgja nokkrar myndir úr fermingunni og veislunni á Hótel Öldunni.

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


4 ummæli:
Mmmm... namminamm... þetta er girnilegt veisluborð :)
Ég sit núna á Þjóðarbókhlöðunni og á að vera að læra fyrir prófið sem er á þriðjudaginn... eitthvað er nú netið óvenju freistandi þessa stundina.
Bestu kveðjur til ykkar allra fyrir austan!
Takk kærlega fyrir síðast og gleðilegt sumar. Já þetta var alveg meiriháttar veisla. Svo góður maturinn! Bestu kveðjur Helga Dögg
Til hamingju með strákinn og gleðilegt sumar.
kveðja að norðan
Kata
Takk fyrir kveðjurnar og gleðilegt sumar sömuleiðis - úr Austfjarðaþokunni...
Skrifa ummæli