5.2.06

Að sökkva eða synda...

Hef tekið það rólega um helgina. Er enda alveg orkulaus eftir alla færeysku dagana sem tóku við af þorrablótstörninni. Fór samt í dag niður í skóla að vinna í námsmati sem þarf að skila í lok næstu viku. Þar á undan vorum við búin að sitja í einn og hálfan tíma við eldhúsborðið hjá Ólafíu mágkonu og Guðjóni og háma í okkur nýbakaðar bollur á meðan fermingarundirbúningur var ræddur. Takk fyrir okkur, Ólafía!

Þegar ég kom heim úr skólanum var öll íbúðin nýskúruð, ilmandi hrein og fín. Ekki amalegur eiginmaður sem ég á :) og einmitt á meðan ég skrifa þessar línur er hann að setja hreint á rúmið okkar. Já, ætli það sé ekki bara kominn háttatími.

Engin ummæli: