
Þorrablótið tókst alveg stórvel, það eru flestir (ef ekki allir) sammála um. Þemað var "Stjörnubærinn Hollyfjörður" þar sem ýmsir þekktir listamenn hafa verið tíðir gestir hérna undanfarið, eins og Sigurjón Sighvats, Björk o.fl. - Og bara mesta furða hvað náðist út úr hópnum, að sögn leikstjórans. Salurinn aldrei flottari, maturinn góður, dagskráin "ekki eins skemmtileg í mörg ár" og punkturinn yfir i-ið var svo hljómsveitin. Hljómsveitin Buff er einfaldlega frábær. Við dönsuðum af okkur rassinn, eins og krakkarnir segja!

Helgina eftir þorrablót er alltaf haldið þurrablót (= þorrablót án áfengis) og eru það elstu nemendur grunnskólans sem hafa mestallan veg og vanda af því. Þau fá reyndar foreldra til að hjálpa sér með matinn, eitt-tvö atriði koma venjulega frá þorrablótinu og í ár voru kennarar líka með atriði, að ég held í fyrsta sinn. Skemmst er frá því að segja að þetta var hin besta skemmtan og eiga krakkarnir hrós skilið fyrir vel undirbúið og skemmtilegt blót.
Það er líka gaman að segja frá því að allan janúar hafa verið hjá okkur í Seyðisfjarðarskóla, þrír kennaranemar frá Færeyjum. Af því tilefni standa nú yfir færeyskir dagar í skólanum. Nemendur eru að vinna í mismunandi smiðjum í heila viku, ásamt því að læra hluta af Orminum langa og færeyskan hringdans. Ég er með smiðju sem heitir "heimasíðugerðarsmiðja" þar sem við erum að búa til
vef um Færeyjar og færeysku dagana. Hann verður vonandi tilbúinn eftir hádegi á þriðjudag, þegar vikunni lýkur með sýningu fyrir gesti og gangandi.
Það er sem sagt nóg að gera hér á Seyðisfirði og enginn tími til að láta sér leiðast, hvað þá að ergja sig á því að enn eru a.m.k. þrjár vikur þangað til við fáum aftur að sjá sólina. Þær verða liðnar áður en við vitum af.
5 ummæli:
hæ hó!
Fyrirgefðu að ég skildi plata þig á Grandakaffi. Mig langaði bara að sjá hvort ég næði að plata einhvern sem ég veit ekki að les síðuna okkar. Því það eru svo margir sem koma í heimsókn en fáir kommenta.
Ég var annars að skoða færeysku síðuna ykkar. Alveg rosalega flott!! Bestu kveðjur :)
Þú ert alveg ferleg Elva! Mér dauðbrá, en huggaði mig svo við að ég hafði svo sem ekki skrifað neitt sem ekki mátti sjást... (eða gast þú nokkuð lesið það sem ég skrifaði)?
Við erum nokkuð ánægð með færeyska vefinn okkar, takk - en hann er samt ekki alveg tilbúinn. Formleg opnun verður á morgun upp úr kl. 13:00. Þú verður eiginlega að kíkja aftur þá.
Bestu kveðjur :)
já ég er alveg ferleg. Ég er með stórt samviskubit að hafa platað fólk svona. En vonandi tekur fólk þessu bara létt, ég skoða ekkert hvað fólk segir, fæ bara tölvupóst um hver hefur látið gabbast. Já, ég kíki aftur á færeyska vefinn við tækifæri. Heyrumst!
Hehe, þetta er bara fyndið. Hafa margir látið gabbast?
nei svo sem ekki margir. En ég samt veit engin deili á einni og Hannes ekki heldur!
Skrifa ummæli