15.2.06

Tilkynning

Það er kominn tími til að tilkynna opinberlega að við fjölskyldan hyggjumst dvelja eitt ár í Englandi frá og með næsta hausti. Þannig er að ég hef fengið námsleyfi á launum hjá í eitt ár og ætlum við að láta gamlan draum rætast og prófa að búa í Englandi. Að þessu ári liðnu gerum við fastlega ráð fyrir að koma aftur til Seyðisfjarðar og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.

Stefnan er sett á meistaragráðu annaðhvort í University of Cambridge eða í fjarnámi hjá KHÍ. Okkur langar mest að vera í Cambridge af því að Nína systir Jóhanns býr jú þar ásamt fjölskyldu sinni. Húsið okkar er því til leigu á meðan og jafnvel til sölu!

Og hana nú, þá er þetta orðið opinbert, ef fólk hefur einhverjar spurningar þá má endilega setja þær í "comments" hér fyrir neðan.

P.s. Guðrún, ég veit að þú nældir mig - það kemur... þegar ég er búin að skila af mér námsmati núna á föstudaginn.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gálgafrestur :þ

Katrín Úlfarsdóttir sagði...

Frábært hjá ykkur. Vildi að ég hefði kjark til að hleypa heimdraganum. Cambridge er skemmtileg borg. Ég hef komið þar og þekki raunar Íslenska konu sem býr þar.
Kv. Kata

Bára Mjöll sagði...

Já, þetta er ótrúlega spennandi. Við erum öll þrjú jafnspennt að prófa að búa í útlöndum. Cambridge er mjög skemmtileg, við höfum nokkrum sinnum verið þar í heimsókn hjá Nínu mágkonu og Paul. Þau þekkja örugglega þessa konu sem þú þekkir þar.

Nafnlaus sagði...

Blessuð ævinlega vinkona.

Frábært hjá þér að drífa þig og fjölskylduna til Cambridge. Hvað ætlar þú að stúdera þar?
Elsa systir og hennar fjölskylda býr þar og þau kunna mjög vel við sig. Ég er viss um að hún hefði gaman að því að hitta þig og þína.
Kveðja, Dagmar.

Bára Mjöll sagði...

Nei hæ Dagmar, gaman að heyra í þér! Ertu kannski reglulegur lesandi?

Ég stefni á að klára annaðhvort M.Ed. eða M.Phil. í tölvu- og upplýsingatækni eða í skólaþróun og stjórnun. Það fer eftir því hvar ég kemst inn. Ég vissi ekki að Elsa væri í Cambridge, en vissulega væri gaman að hitta þau. Heldur þú að hún muni eftir mér?