Jólin voru ljúf eins og alltaf. Ég læt fylgja hérna með mynd af okkur hjónunum og einkasyninum ásamt Guðjóni Má(g) með jólatréð okkar stóra og fallega í baksýn. Myndin er tekin á aðfangadagskvöld, en þau úr Botnahlíðinni komu og borðuðu desertinn hjá okkur ásamt þeim á efri hæðinni sem voru hjá okkur allt kvöldið.
Það var bara veðrið sem var ekki alveg í jólaskapi og ég saknaði þess að hafa ekki glitrandi jólasnjó. Ef það væri ekki svona dimmt alltaf þá gæti maður reyndar haldið að það væri komið sumar, hér var yfir 15°C hiti í dag!
Ég man ekki hvort ég var búin að segja það, en við vorum kölluð inn í Þorrablótsnefnd rétt fyrir jól og stífur undirbúningur er hafinn. Blótið verður þann 21. janúar þannig að ekki er langur tími til stefnu. Ég held samt að við förum létt með þetta, það eru allir svo jákvæðir og duglegir.
Meira að segja börnin voru fegin að skólinn byrjaði aftur í morgun og voru eins og englar í allan dag.


2 ummæli:
Gleðilegt nýtt ár!! Við mætum á Seyðisfjörðinn þegar fer að vora og kíkjum á himininn hjá ykkur :)
Kveðja, Elva og Hannes
Þið verðið að gera það, ekki spurning. Verið ævinlega velkomin..
Skrifa ummæli