
Jæja, nú mega jólin bara koma. Hér er allt orðið hreint og fínt, búið að skreyta jólatréð og sjóða hangikjötið. Við fengum þetta líka risastóra jólatré, það var ábyggilega hátt í 2.50 m þegar Jóhann kom með það heim! Hann fór upp á Hérað og ætlaði að kaupa blágreni, um 1.50 m. Þegar hann kom þangað var allt rauðgreni og blágreni búið, en honum bauðst að kaupa normansþyn á sama verði. Já, já, hann var alveg til í það. En þá voru bara til yfir tveggja metra há tré - en það var hægt að fá þau á alveg sama verði og þau minni. Hann gæti bara sagað neðan af því. Þannig að heim kom hann með þetta megaflotta jólatré. Næstum allt jólaskrautið okkar fór á það, enda var nánast óþarfi að skreyta íbúðina meira þegar búið var að skreyta jólatréð.
Við óskum öllum vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir árið sem er að líða. Hafið það öll gott um jólin.
3 ummæli:
Gleðileg jól Bára ! - og beztu nýársóskir..
Gleðilegt nýtt ár frænka!
Sömuleiðis, elskurnar mínar :)
Skrifa ummæli