8.12.05

Jólahlaðborð o.fl.

Obbobbobb. Nú hef ég ekki staðið mig mjög vel í blogginu. Dagarnir fljúga áfram og það er allt í einu kominn 8. desember - var ekki 1. des. bara í gær? Jæja, manni leiðist ekki á meðan.

Ég fór á tvö jólahlaðborð um síðustu helgi; fyrst með kennurunum og svo með kirkjukórnum kvöldið eftir. Í bæði skiptin var sami matseðill, en það gerði ekkert til því maturinn var æðislegur. Ekta danskur jólamatur a la Johannes Salting, sem er kokkur á Hótel Öldunni. Mmmm, ég er eiginlega enn þá södd! Hljómsveitin Los Labbokútos spilaði fyrra kvöldið og gerðu mikla lukku að venju. Meðfylgjandi mynd er einmitt tekin þá. Frá vinstri: Kristján Smári, Atli Gunnar, Hjörtur Gunnlaugs, Gauti, Stefán og Einar Bragi.

Jólakvíðinn og stressið hefur sem betur fer ekki náð sér verulega á strik, en dóttir mín minnti mig á það í gær að "þetta á að vera skemmtilegt". Það er alveg rétt og verður það mitt leiðarljós í jólaundirbúningnum. Planið er að versla um helgina; jólagjafir, jólaföt, laufabrauð o.s.frv. Ganga svo frá jólakortunum og senda gjafir og kort af stað í næstu viku - eða þarnæstu. Það er ágætis plan, held ég.

Jæja, kominn tími til að fara að hugleiða. Guði sé lof fyrir yoga og hugleiðslu.

2 ummæli:

Elva sagði...

hæ, hæ!
Gott að jólastressið er ekki að ná tökum á þér. Ég er alveg saliróleg þrátt fyrir að prófin séu að hellast yfir mann. Spurning hvort það sé gott eða slæmt... Er ekki alveg að ná því að jólin eru á næsta leyti.
Var að heyra að þið kæmuð norður á jóladag. Jeeeiiiii!!!!! Hlakka mikið til að sjá ykkur :)

Bára Mjöll sagði...

Það verður líka gaman að sjá ykkur um jólin :) Svo ætlum við að skreppa norður næsta sunnudag; í pakka-, fata- og matvælaleiðangur. Þú mátt segja mömmu þinni að við komum með rjúpurnar þá. Vonandi verður enn svona góð tíð, þó það megi alveg fara að snjóa smá til að hjálpa upp á jólaskapið.

Gangi þér vel í prófunum, Elva mín.