...byrjar alveg sérstaklega vel hjá mér í ár. Ég fór inn í geymslu í gær, náði í mestallt jóladótið og kom því fyrir inni í borðstofu. Það fer samt ekkert mikið fyrir því, ég tók bara upp skreytingar með jólaseríum, aðventuljósin og skraut fyrir aðventukransinn. Svo fórum við Stefán niður í leikskóla að kaupa greni. Þar var glatt á hjalla eins og alltaf á "greniskreytingardaginn" og við fengum okkur heitt kakó og vöfflur áður en við fórum heim. Snaraði síðan upp einu stykki aðventukransi, einu stykki aðventuljósum og tveimur ljósaskreytingum út í glugga. Stefán bjó til tvær kertaskreytingar sem fóru á eldhúsborðið (sjá mynd) og sófaborðið. Í dag var svo ekkert annað að gera en að kveikja á öllu saman - og njóta!
Í kvöld fórum við upp í Egilsstaði að hlusta á jólahluta Messíasar eftir Händel. Það var alveg yndislegt - frábær flutningur hjá einsöngvurum, kór og sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Mjög gott til að minna sig á tilefni jólanna áður en jólastressið tekur völdin. Í ár ætla ég að reyna að njóta aðventunnar og gera bara það sem mig langar að gera fyrir jólin og hugsa ekki um að maður verði að gera þetta eða hitt.
Sóley móðirsystir mín, kvaddi þessa jarðvist aðfaranótt fimmtudags eftir harða baráttu við krabbamein. Blessuð sé minning hennar og mínar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldunnar sem á nú um sárt að binda. Ég bið algóðan Guð að senda þeim huggun og styrk.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli