Við eyddum tímanum í heimsóknir og útiveru og hittum marga sem við höfðum ekki séð lengi eins og Ástu og krakkana og Erlu Fanndal og fjölskyldu. Það var mjög ánægjulegt. Jóhann fékk leyfi til að fara í Dalfjallið og skaut í jólamatinn handa mömmu og pabba og Pálma og fjölskyldu. Á meðan fór ég með Ásdísi upp í skóla þar sem hún sýndi mér skólasafnið og fleira. Eftir það fórum við í lónið, sem var sjóðandi heitt og algjör ævintýraheimur umvafið gufu í stilltu og köldu veðri.
Stefán átti flug til Akureyrar á sunnudaginn og eftir seinkun ofan á seinkun lenti hann loks rétt fyrir kl. 18. Þá sóttum við Söndru í Reykjadalinn, fórum til Húsavíkur og borðuðum saman kvöldmat þar. Við komum svo heim í gær, endurnærð eftir fríið. Mikið finnst mér gott að fá smáfrí núna til að brjóta upp þessa lööööööööngu haustönn. Ég skil ekki fólk sem er að agnúast út það að skólar skuli vera að taka haust- eða vetrarfrí. Það er nauðsynlegt fyrir nemendur að fá örlítið hlé annað slagið eins og okkur öll.
Legoliðið hans Stefáns gerði góða ferð til Reykjavíkur og kom heim með verðlaun fyrir besta skemmtiatriðið, að þeirra sögn. Á heimasíðunni stendur að þau hafi unnið "Show - prisen" sem hljóta að vera sýningarverðlaun fyrir bóklega hlutann, en þau voru m.a. með leikrit og tónlistaratriði. Í vélmennakeppninni urðu þau í 14. sæti en það gengur bara betur næst. Til hamingju krakkar!


1 ummæli:
Vá hvað þetta er falleg mynd!
Annars dauðöfunda ég þig af þessu fríi. Mikið vildi ég fara norður í smá frí, hef ekki farið þangað síðan í júlí... sem er náttúrulega allt of langt síðan!!
Bestu kveðjur :)
Skrifa ummæli