Mamma og pabbi voru hjá okkur um helgina og ósköp var notalegt að fá þau í heimsókn. Á laugardaginn var haustmarkaðsdagur hér í bænum og við mamma fórum í búðarráp á meðan karlpeningurinn horfði á fótbolta í sjónvarpinu. Við komum auðvitað klifjaðar heim bæði af brýnum nauðsynjum og algjörum óþarfa. Fórum samt bara á þrjá staði: flóamarkað í Angró (gítarstrengir, kvöldte og gamalt pils), Draumhúsið (kertastjaki, kerti og bleikur hálsklútur) og Verslunina Ósk (batterísljósasería, blómaflotkerti og semalíunæla).
Síðan þurfti ég að fara yfir vélritunarpróf og fór allt gærkvöldið í það. Ég náði sem sagt ekki að skrifa neitt hérna inn um helgina og ætlaði þess vegna að skrifa smápistil núna, en þá sé ég að það er kominn háttatími. Mér hefur ekki gengið mjög vel að standa við það að fara snemma að sofa og snemma á fætur, en maður verður að reyna!
10.10.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
best að kommenta hérna núna. Ég veit ekki alveg hvenær við flytjum. Hannes er enn á Nýja-Sjálandi en hann kemur heim í lok vikunnar. Svo eigum við enn eftir að selja Grandaveginn...
Ok, en það verður sem sagt bara fljótlega - fyrir jól alla vega?
Skrifa ummæli