31.10.05

Gospel

I give you my heart, I give you my life
simply give it to you.
I give you my soul, I give you my all
lay it all before you.

Heaven's arms open, my heart lifted high
and your love lifts me up
to where you are.

And here I find peace
and here I find peace
and here I find peace
with you.

Var á alveg rosalega skemmtilegu gospelnámskeiði um helgina. Það var á vegum sóknarpresta á Héraði og leiðbeinandi var enginn annar en Keith Reed. Keith er í uppáhaldi hjá Kirkjukór Seyðisfjarðar síðan hann var organisti hjá okkur einn vetur í afleysingum.

Á námskeiðinu voru ábyggilega um 30 konur og stelpur á öllum aldri. Þessi kvennakór söng síðan í gærkveldi við messu í kirkjuselinu í Fellabæ fyrir fullu húsi. Syngjandi karlmenn á Austurlandi voru allir að reyna að komast suður á laugardaginn á landsmót karlakóra svo þeir misstu af þessu, en ekkert var flogið frá fimmtudagskvöldi fram á laugardagskvöld.

Engin ummæli: