
Var búin að lofa Sollu að koma hér með leiðréttar fréttir af berjasprettu. Það er ekki rétt sem ég hafði eftir henni um daginn að það væru engin krækiber hér fyrir austan. Þau eru hérna og meira að segja mikið af þeim. Sama má segja um bæði bláber og aðalbláber. Maður þarf bara að vita um réttu staðina og ég er ekki viss um að ég megi gefa of mikið upp um þá á þessum vettvangi...
Síðan hef ég heyrt að það sé hægt að finna hrútaber upp á Héraði. En nú fer líklega hver að verða síðastur að ná sér í ber, því mér skilst að verið sé að spá næturfrosti í næstu viku.
Það er nú eitthvað annað en í Portúgal. Þar á að vera hitabylgja með 33-34°C. Það verður notalegt að fylla kroppinn af sól og yl fyrir veturinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli