Eftir miklar vangaveltur og heilabrot ákváðum við að hafa veisluna bara í farangrinum og koma svo við hjá öllum sem við ætluðum að bjóða! Við keyrum hvort sem er fram hjá og munar ekki um að stoppa stutta stund á hverjum stað. Þetta eru reyndar bara 2 staðir fyrir utan Seyðisfjörð; í Reykjadal hjá föðurfjölskyldu Söndru og í Mývatnssveit hjá fjölskyldunni minni. Þannig náum við að leyfa öllum ættum sem standa að dömunni að gleðjast með henni um útskriftarhelgina.
Og fyrir þá sem eru á suðvesturhorninu: við verðum stödd á veitingastaðnum Heitt og kalt á Grensásvegi 10, strax eftir útskrift um eða upp úr hádegi laugardaginn 21. maí, ef einhver sem þetta les hefur áhuga á að koma og óska nýstúdentinum til hamingju. Þar mun fást fínasta súpa og salatbar.
Um kvöldið ætlum við fjölskyldan svo að snæða hjá Austur Indíafélaginu á Hverfisgötu...mmm.
Með þessum pistli er tilvalið að láta fylgja mynd sem tekin var af Söndru Hrafnhildi þegar hún var svona þriggja ára með stúdentshúfu móður sinnar á höfðinu. Nú þarf að taka nýja mynd.


4 ummæli:
Til hamingju með stelpuna! Ég kíki alltaf við og við á síðuna þína. Sérstaklega í próftíðinni þegar maður á að vera að læra, þá freistar netið allt of mikið... Hver veit nema maður kíki til ykkar á Heitt%Kalt, ég verð reyndar að læra undir próf svo það verður bara að ráðast. Bestu kveðjur til ykkar allra! :)
Takk Elva mín - mikið væri gaman að sjá ykkur Hannes á laugardaginn og eins Ingu og Andra. Gangi þér annars vel í prófunum og takk fyrir að líta inn!
Til hamingju með stelpuna. Krúttleg mynd af henni. :)
Takk, takk :)
Skrifa ummæli