Annars er allt gott að frétta; þemadagar í skólanum þessa viku, nokkrir starfsdagar í næstu viku og svo sumarfrí! Að vísu ekki mjög langt þar sem ég tek ekki allt fríið í einu á bókasafninu, en það eru bara 12 tímar á viku...
Útskriftarhelgin hennar Söndru var brjálæðislega skemmtileg. Við fórum tvisvar út að borða og vorum með þrjár veislur! Áætlunin var djörf og hún gekk næstum því upp. Laugardagurinn var mjög góður, en sumir sváfu yfir sig á sunnudagsmorguninn og tímaáætlun raskaðist því nokkuð á leiðinni heim. Það varð til þess að engar veitingar voru í einni veislunni og hinum tveim seinkaði aðeins. En allt fór vel að lokum og við náðum að fagna með ótrúlega mörgum, sem var frábært. Mikið er nú gott að þessum áfanga er náð, hjartanlega til hamingju elsku Sandra mín!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli