En við höfum verið að velta fyrir okkur hvaða tegund þetta sé. Eftir miklar flettingar í fuglabókum fundum við mynd af gulerlu sem okkur fannst að gæti passað, gulerla er skv. bókunum flækingur í Færeyjum og á Íslandi. En Andrés vinnufélagi Jóhanns segir að þetta sé steindepill, einn algengasti smáfugl á Íslandi og þegar betur er að gáð þá er það líklega rétt hjá honum. Hvað heldur þú pabbi?
Vonandi er honum ekki of kalt núna í frosti og snjófjúki, greyinu.


3 ummæli:
Hæ hæ, það er rétt að þetta er Steindepill, við Rúnar erum sammála um það og því á sama máli og vinnufélaginn... bara svona til að staðfesta hans mál, eða þannig... ;-)
Svo óskum við ykkur góðrar ferðar suður og heim aftur og innilegar hamingjuóskir til Söndru H. og ykkar allra á útskriftardaginn 21. maí nk. frá Sollu og fjölsk.
Steindepill it is! Maður er nú ekki líffræðingur fyrir ekki neitt (hóst)
Jæja þá, steindepill skal hann vera. Andrés verður glaður að heyra það. Takk báðar og hamingjuóskir til ykkar líka Solla á útskriftardegi Bergþórs!
Skrifa ummæli