Sandra kom heim þann 16. og hefur aldeilis munað um hana í jólabakstrinum og konfektgerðinni. Og svo fengum við sitt hvort kílóið af konfekti í jólagjöf frá bænum! Það verður líklega puðað í ræktinni eftir áramót og jafnvel á milli jóla og nýárs hugsa ég...
Á morgun verður þrifið og skreytt og svo mega jólin bara koma. Planið var síðan að fara norður á jóladag, en ef veðurspáin gengur eftir verður það líklega ekki hægt fyrr en á annan í jólum - svo framarlega sem það verður hreinsað þá.


2 ummæli:
Gleðileg jól kæra vinkona.
kveðja
Kata
Gleðileg jól sömuleiðis, Kata mín. Hafið það gott um hátíðarnar.
Skrifa ummæli