11.12.04

Jólaundirbúningurinn

Nemendur mínir í upplýsingamennt hafa verið að teikna jólamyndir í Paint og höfum við sent nokkrar inn á jólakortavef Menntagáttar. Avanti Ósk í 4. bekk teiknaði þessa:

Dagurinn í dag hefur verið einkar ánægjulegur. Við Stefán fórum í verslunarferð hér innanbæjar og var það heilmikill leiðangur. Fyrst fórum við í Sparkaup/Samkaup/Úrval eða hvað það heitir núna, síðan í bókabúðina og þaðan í nýju búðirnar tvær á Norðurgötunni, Verslunina Ósk og Draumhúsið. Við vorum nokkuð dugleg að kaupa hitt og þetta og áttum alveg skilið að enda á því að fá okkur heitt súkkulaði og eplaskífur á Hótel Öldu. Þar var mjög róleg og afslöppuð stemming og frábært að láta líða úr sér áður en haldið var heim á leið.

Þar tók við jólakortagerð við undirleik "White Christmas" á dvd-formi; eðalkvikmynd frá árinu 1954 með hinum eina og sanna Bing Crosby, Rosemary Clooney o.fl. Ekki amalegt það. Jólakortin okkar í ár eru tölvuunnin í fyrsta skipti, þar sem við höfum eignast bæði stafræna myndavél og góðan prentara á árinu. Þetta er dálítið dútl, en mjög skemmtilegt.

Maðurinn minn hafði á orði áðan að ég væri óvenju lítið stressuð miðað við árstíma og það er örugglega rétt hjá honum. Ég held að jólastress sé bara huglægt ástand og þess vegna geti maður losnað við það með því að beita huganum. Í ár hef ég ákveðið að njóta jólaundirbúningsins og ekki gera meira en ég get gert. Og svei mér þá, það er að virka...:)

Engin ummæli: