...kom yfir mig í kvöld þegar ég var að labba niður í Herðubreið í yogatíma. Klukkan var að verða sjö, það var næstum orðið dimmt en hlýtt og milt veður. Loftið var ótrúlega hreint og ferskt og gott að vera úti. Ég var að ganga niður göngustíginn á milli Múlavegs og Túngötu og allt í einu fann ég þessa undursamlegu tilfinningu; lífið er frábært! Það bara getur ekki verið betra! Mér leið eins og ekki þyrfti að hafa áhyggjur af nokkrum einasta hlut, allt myndi blessast. Yogatíminn var líka góður eins og alltaf, ég elska yoga það gerir mér svo gott.
Nú er ég loksins búin að skila lokaverkefninu mínu, setti saman skýrslu upp á 15 síður um helgina og skilaði svo í gær. HÚRRA, húrra, húrra!!! Samt er eftir lokafrágangur við Efnisbankann en ég get klárað hann í rólegheitum, því það er orðið víst að ég útskrifast þann 23.okt. Þá fæ ég diplómugráðu Dipl.Ed. sem gefur mér svo sem engin réttindi nema til að sækja um mastersnám og það ætla ég mér að gera innan fárra ára. Svo skilst mér að þessi gráða gefi líka rétt til að sækja um leyfisbréf sem framhaldsskólakennari, aldrei að vita nema ég eigi eftir að gera það.
Í dag ætlaði ég að bóka gistingu fyrir fjölskylduna hjá KÍ á Sóleyjargötunni þar sem við erum vön að gista þegar við förum öll suður, en nei því miður, allar íbúðirnar fráteknar. Bara 2 eins manns herbergi laus aðfaranótt sunnudags og svo var hægt að fá bústað á Flúðum fyrri nóttina. Varla. Tékkaði líka á Hótel Loftleiðum en KÍ býður niðurgreiðslu á gistingu þar, en allt fullt laugardaginn 23.okt. Hvað er að gerast? Verð að athuga með íbúð hjá Afli á morgun, vonandi er einhver laus þar, annars eru góð ráð dýr.
12.10.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli