29.9.04

Miðvikudagur 29. september

Þetta hefur verið annasamur dagur: fór að þrífa kirkjuna fyrir hádegi, í ræktina í hádeginu, verkfallsmiðstöðina eftir hádegi og síðan í búð. Þegar ég kom heim var ég orðin svo þreytt/löt/slöpp að ég fór bara að lesa blaðið og horfa á sjónvarpið þangað til kominn var tími til að taka til kvöldmatinn.

Við mæðginin vorum búin að ákveða að hafa ávaxtakvöld í kvöld. Boðið var upp á jarðarber, melónu, epli, appelsínu og kiwi - tær snilld eins og sjá má:

Nú er klukkan 22:47 og við erum bæði háttuð og komin í rúmið. Vonandi verður morgundagurinn drýgri til að vinna í lokaverkefninu því skiladagurinn 9. okt. nálgast óðfluga.

Engin ummæli: