28.9.04

Verkfall

Ég er 70% í verkfalli, en það er starfshlutfallið mitt í skólanum. Ekkert verkfall á bókasafninu, enda er ég í öðru stéttarfélagi þar. Ég hef haft nóg að gera að vinna í lokaverkefni mínu í framhaldsnáminu og hefði satt að segja varla komist yfir það með fullri vinnu... Þannig að það er lán í óláni. En ég veit ekki hvað ég geri þegar ég er búin að skila verkefninu ef verkfallið dregst á langinn. Þá fer maður líklega bara að huga að jólaundirbúningi; hreingerningu, bakstri, föndri o.þ.h.

Mér finnst mjög mikilvægt að við kennarar stöndum með sjálfum okkur í verkfallinu. Það er ljóst að nauðsynlegt er að lagfæra samninginn frá því síðast varðandi vinnutímann og allir viðurkenna að kjörin þarf að bæta. En sveitarfélögin eru ófær um þetta og þar stendur hnífurinn í kúnni. Ríkið verður einfaldlega að grípa inn í og veita meiri fjármunum til sveitarfélaganna svo hægt sé að leysa þetta mál og fleiri, án þess að ég ætli að fara nánar út í slæma stöðu sveitarfélaganna. Vonandi sjá ráðamenn þetta áður en langt um líður og áður en allt verður komið í óefni í skólastarfi vetrarins.

Annars er dásamlegt veður, sól og logn en nokkuð svalt eða 6°C. Best að drífa sig út í göngutúr.

Engin ummæli: