Hér hefur lítið verið um að vera síðan í nóvember, en það þýðir þó ekki að ekkert hafi gerst hjá mér síðan þá. Nei, ónei. Í upphafi aðventu hófst jólaundirbúningur fyrir alvöru og því miður fylgdi honum töluvert jólastress sem náði hámarki á fullu tungli þann 8. des. Eftir það rann þessi tími ljúflega áfram og áttum við fjölskyldan mjög notaleg og skemmtileg jól, afmæli og áramót.
Nú síðustu daga hefur einkadóttirin verið að flytja og koma sér fyrir aftur hér á Austurlandi, eftir að hafa prófað eina önn í höfuðborginni. Án efa góð reynsla fyrir hana, en það er nú gott að fá hana aftur hingað í nágrennið. Velkomin Sandra mín! Svo er skólinn byrjaður og meira að segja þrettándinn runninn upp. Ég verð nú að segja að eins og mér finnst gaman að setja upp allt jólaskrautið, þá er ég alltaf hálffegin þegar ég tek það niður aftur, því það tekur svo mikið pláss! Svo finnst mér líka alltaf gott þegar hversdagsrútínan byrjar aftur eftir svona gott frí. Mmmm...


Engin ummæli:
Skrifa ummæli