23.11.03

Þvílíkt sem það er búið að vera mikið að gera hjá mér síðan ég kom heim! Ferðin stóð reyndar í heila 12 daga, fyrst var ég 7 daga í Englandi og svo 5 daga í Reykjavík. Það var náttúrulega alveg frábært úti og svo var staðbundin lota hjá mér í skólanum þegar ég kom heim, mjög skemmtilegt. Ég kom svo hingað austur sl. miðvikudagskvöld - beint í Daga myrkurs og 90 ára afmæli Hugins núna um helgina. Búin að baka rjómatertu fyrir afmælið og standa fyrir uppákomu á bókasafninu auk þess að mæta á kósíkvöld í sundlauginni í gærkveldi. Núna á eftir erum við svo að fara á hátíðardagskrá og kaffi í Herðubreið...

Engin ummæli: