Það er ótrúlega pirrandi þegar tölvur virka ekki eins og þær eiga að gera. Nú eru búin að vera vandræði með internet tenginguna hjá mér í vinnunni í rúma 2 mánuði og sér ekki fyrir endann á þeim enn. Það er greinilega ein ákveðin tölva sem lokar á tenginguna hjá hinum tölvunum um leið og það er kveikt á henni. Þetta er mjög bagalegt því af þessum sökum er ekkert hægt að nota þessa tölvu auk þess sem það getur tekið nokkurn tíma að koma tengingunni aftur á í hinum tölvunum þegar það er búið að slökkva á þessari.
Fyrst datt okkur í hug að það væri vírus að valda þessu en nú er búið að vírusleita og hreinsa tölvuna og það virðist ekki breyta neinu. Hún vinnur heldur alls ekki eðlilega, opnar ekki forrit og kemur stöðugt með villuboð. Ætli það verði ekki bara að henda henni og kaupa nýja... Það er sennilega hvort sem er ódýrara en að láta gera við hana.
16.1.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli