Já, samkvæmt úrskurði sérfræðinga fyrir sunnan var þessi tölva einfaldlega of biluð til að það borgaði sig að gera við hana og þeir voru svo miklir snillingar að selja okkur bara aðra í staðinn. En þessi gamla var nú líka orðin 4 ára og kominn tími á hana skilst mér....
Annars gengur allt vel; búin að vera mikil törn í náminu, en öll skil frá í bili og svo er opinberi sólardagurinn hjá okkur í dag! Húrra, loksins fáum við að sjá sólina aftur eftir næstum 4 dimma mánuði! Því miður er frekar skýjað í dag en vonandi verður bjartara á morgun svo hún geti skinið aftur á bæinn okkar. Annars hefur verið mjög bjart og gott veður undanfarið og við höfum getað fylgst með hvernig sólargeislarnir hafa smám saman skriðið niður fjallshlíðarnar að bæjarmörkunum og jafnvel aðeins inn fyrir þau. En því miður viðrar ekki eins vel í dag, þó það sé heldur hlýrra en undanfarna daga.
18.2.04
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli