Nú er ég búin að liggja yfir Dreamweaver og Fireworks og afraksturinn er kominn á Netið: ein lítil og hrá skilasíða. Hún er undir heimasíðunni minni á Ísmennt og slóðin er http://www.ismennt.is/not/bmj/index.htm
Þetta gekk nú alveg sæmilega, þó það tæki smá tíma að rifja upp og margt er ólært enn. Ég á eftir að klára vefrallýið sem mig langar að hafa um Kaldaljós, en það er verið að taka hana upp hérna um þessar mundir og ég finn að krakkarnir eru forvitnir um myndina.
Ég hef verið að skoða og lesa bloggin hjá ykkur hinum og sé að margir eru ansi flinkir, en ég vil taka undir það að þetta er dálítið eins og að tala við sjálfan sig. Mig langar að setja upp teljara svo ég geti a.m.k. séð hvort einhver kemur inn á síðuna....kannski fer ég í það um helgina.
31.1.03
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli