Ég er fædd og uppalin í Mývatnssveit, en lagði leið mína tæplega 16 ára gömul í MS og lauk stúdentsprófi þaðan 1983. Eftir nokkuð langa umhugsun ákvað ég að að fara í KHÍ og útskrifaðist sem grunnskólakennari 1989. Réð mig þá í kennarastöðu austur á Seyðisfjörð og hef búið hér síðan.
Mest hef ég kennt íslensku og ensku á unglingastigi, þó ég hafi prófað nánast allar greinar og árið 1997 féllst ég á að bæta við mig umsjón með skólasafninu. Vorið 1999 tók ég svo líka við almenningsbókasafninu og nú kenni ég aðeins upplýsingamennt í 4.-6. bekk, 8 tíma á viku, ásamt því að veita Bókasafni Seyðisfjarðar forstöðu.
Helstu áhugamál mín eru kórsöngur, jóga og útivist hvers konar. En annars hef ég yfirleitt mestan áhuga á því sem ég er að gera hverju sinni og á það til að hella mér út í hitt og þetta. Eiginmaðurinn heitir Jóhann Stefánsson og börnin eru tvö, Sandra 17 ára og Stefán 10 ára.
P.s. Forritapakkinn kom í dag, jeiii!


Engin ummæli:
Skrifa ummæli