26.1.03

Jæja, þá er vel heppnuðu þorrablóti lokið og hægt að snúa sér aftur að "skylduverkunum". Ég var búin að sitja við og skrifa tæknisögu mína í löngu máli en tókst síðan að eyða henni út með einni snertingu, ótrúlegt! Ætli ég verði þá ekki að senda út styttri útgáfuna í bili, a.m.k.

Tæknisaga Báru Mjallar
Kynni mín af tölvum hófust í menntaskóla um 1980, en eftir að ég byrjaði að kenna 1989 og keypti mína fyrstu tölvu, hafa þau orðið nánari. Ég byrjaði að nota tölvupóst vorið 1993 og fór á 2 fjarnámskeið hjá Ísmennt veturinn 1996-97, annað um að vafra á vefnum og hitt í vefsíðugerð. Að því loknu setti ég upp heimasíðu þá um vorið. Í dag eigum við eina nýlega PC borðtölvu og eina mjög gamla Macintosh Plus, sem sonur minn hefur inni hjá sér og teflir stundum við. Dóttirin er farin að pressa á að fá fartölvu til að nota í menntaskólanum og ætli það verði ekki næsta fjárfesting. Ég vonast til að fá líka mína eigin fartölvu í framtíðinni og ætli sonurinn fái ekki sína í fermingjargjöf eftir 4 ár, eða jafnvel fyrr.

Við erum með gamaldags tengingu um venjulega símalínu og því er alltaf á tali þegar við erum á Netinu. En allir fjölskyldumeðlimir eiga gsm (alls 4) svo það kemur ekki mikið að sök. Við erum með einn þráðlausan heimilissíma, 3 sjónvörp, PlayStation 2 með DVD drifi, en ekkert myndbandstæki. Við sjáum ekki Skjá 1 en höfum bæði Stöð 2 og Sýn. Okkur langar í stafræna myndavél því við eigum bara venjulega (APS) myndavél, en það fylgdi vefmyndavél með tölvunni. Kannski á maður eftir að setja hana upp á heimasíðunni!

Í skólanum er beinlínutenging og á bókasafninu hef ég ISDN, en það stendur til að setja upp ADSL hérna fljótlega og þá skipti ég örugglega yfir í það á bókasafninu og jafnvel heima líka. Mér finnst mjög mikilvægt fyrir landsbyggðina að hafa góða tengingu því Netið er að rjúfa einangrun sem við höfum mátt búa við. Ég sé fyrir mér að góð og örugg þráðlaus tenging verði sjálfsagður hlutur alls staðar - ef ekki verður búið að friðlýsa okkur í einhverjum þjóðgarði sem sýningargripi fyrir höfuðborgarbúa og útlendinga.

Engin ummæli: