1.10.08

Vetrarlegt á heiðinni



Allt í einu er orðið vetrarlegt, rétt þegar maður var farinn að venjast haustinu. Þessi mynd var tekin í gær þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni. Þá hafði snjóað nánast látlaust allan daginn á Egilsstöðum. Í dag hefur rignt, en ég reikna nú með að það sé snjór á heiðinni...
Er einhver sem býr svo vel að geta lánað mér vöggu í svo sem eins og 10 daga frá 10. október nk.? Ömmustelpa er nefnilega að koma í heimsókn - mikið verður gaman þá :)
.

1 ummæli:

Elva sagði...

brrr... manni verður bara kalt á að horfa á myndina.

En mikið verður gaman fyrir ykkur að fá litla ömmu- og afabarnið í heimsókn.

Vorkveðja frá Tassie :)